miss you,,,,,,,mér er búið að vera hugsað mikið til þín núna undafarið,,,,,þú verður að skemmta jade þegar hún kemur,lov you lots kv inger
Jón Felix05/03/09
Hæ Guðrún
Til hamingju með afmælið. Mikið vildi ég óska þess að geta gert eitthvað skemmtilegt með þér í dag, hvað sem er, þú ræður.
Nú er ég búinn að stara á skjáinn í dágóða stund og á meðan hafa runnið í gegnum hugann ótal margar ótrúlegar minningar um þig. Champagne breakfast, hesthúsapartý, gamlárskvöld, kvöldið í Galtafelli, borgarholtsferðir og svo margt margt fleira. Þú varst nefninlega svo mikið mikið meira. Það var sönn blessun að hafa haft þig hér í þennan stutta tíma. Ég vona innilega að þú sést hamingjusöm í dag.
Afmæliskveðja
Jón Felix
Sigríður Erla04/03/09
Elsku yndislegasta Guðrún.
Í dag, eins og alla adra daga hugsa ég til þín og minnist góðu stundanna sem við áttum saman.
Mikið sakna ég þín ofboðslega mikið.
elsku guðrún,
þetta er fallegur afmælisdagur hér í new york. ég hugsa svo oft um þig og sé þá alltaf fallega brosið þitt og orkuna sem geislaði frá þér.
það gustaði um þig og þú fórst ekki fram hjá manni. í dag hefðir þú orðið 22 ára, til hamingju með daginn, við erum alltaf með þér í huganum og þú eldist með okkur kæra frænka.
innilegar kveðjur til ykkar elísabet, jón, jónína og snæfríður.
Vona að þú eigir góðan afmælisdag þar sem þú ert. Sólin skín hérna í New York þótt svo að það sé snjór yfir öllu og kalt úti. En það er fallegur vetrardagur og ég er glaður að þessi dagur sé afmælisdagurinn þinn. Ég, mamma og Korka erum að fara að hitta Gísla frænda í kvöld og við höldum upp á afmælið þitt í leiðinni.
Hæ elsku Guðrún mín,
Í dag eru 22 ár síðan þú bræddir hjörtu okkar með stjörnu innkomu þinni í heiminn! Full af orku og gleði einkenndi þig og lifir í minningunni ásamt því, auðvitað, að vera algjör prakkari :). Ég óska þess heitar en allt að við hefðum getað fengið njóta návist þinni lengur og að litlu frænkur þínar hefðu fengið að kynnast gull englinum! Þú lifir alltaf í hjörtum okkar og gerum okkar besta til leyfa Elísabetu og Hrafnhildi til kynnast þér í gengum okkur.
Með stórum saknaðar tárum rennandi niður kinnar mínar óska ég þér innilega til hamingju með daginn elsku besta systir og því miður fá ekki orð því lýst hversu mikið við söknum þín engillinn minn...
Brói
mamma28/02/09
elsku hjartans engillinn minn, hvað við söknum þín sárt...
Nú eru 3 ár lidin, og margt gerst i millitidinni en thegar ég sá á dagatalinu i dag at thad væri 28 feb. leid mer allt i einu eins og ad thetta hefdi gerst í gær.
Mig langaði bara að láta þig vita að ég hef oft hugsað til þín þennan tíma síðan dóttir þín dó. Ég er búin að vera á leiðinni að hafa samband en hef trassað það endalaust.... Í dag rakst ég svo á þessa síðu og ákvað að skrifa nokkrar línur.
Þrátt fyrir að nokkur tími sé liðinn langar mig einfaldlega að segja að ég samhryggist þér og þínum innilega. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að missa barnið mitt og fæ tár í augun við tilhugsunina um hvað þú ert búin að ganga í gegnum.
Kveðja úr fortíðinni, Vanda.
teksti e. Hjálmar11/03/08
Ég ætla mér út að halda
örlögin valda því
mörgum á ég greiða að gjalda
það er gömul saga og ný
guð einn veit hvert leið mín liggur
lífið svo flókið er
oft ég er í hjarta hryggur
en harka samt af mér
eitt lítið knús elsku mamma
áður en ég fer
nú er ég kominn til að kveðja
ég kem aldrei framar hér.
er mánaljósið fegrar fjöllin
ég feta veginn minn
dyrnar opnar draumahöllin
og dregur mig þar inn
ég þakkir sendi, sendi öllum
þetta er kveðjan mín
ég mun ganga á þessum vegi
uns lífsins dagur dvín
Til Hamingju með afmælið elsku Guðrún mín,
Ég þekki þig rétt hefur ekki vantað upp á uppátækissemina hjá þér í dag :)
Eins og þú veist þá ertu að fá frá mér líklegast eina frænku í viðbót, þú veist hvernig við pabbi erum það koma bara stelpuormar hjá okkar :)
Hvað þetta er nú allt fljótt að líða. Það virðist vera svo stutt síðan við vorum hjá Jóni Felixi að skemmta okkur í garðinum hjá honum eða hjá Steefáni að grilla, ennþá styttra síðan þú heimsóttir mig í 10-11 niðrí bæ og ég var að reyna að sannfæra þig um að þetta væri skítapakk á torginu, eða þegar við vorum að keyra á rafmagnsbílnum þínum í Skeifunni og ég keyrði á eggjagrindina og eyðilagði hundruðir eggja (atvik sem ég kenni pabba þínum alfarið um) og þegar þú fæddist með rauða hausinn þinn og ég eignaðist fyrstu frænkuna mína.
Þótt að tíminn líði og aðrar minningar berjast um plássið í huga manns þá gleymir maður þér aldrei, og þeir sem eiga góðar minningar um þig gera það heldur ekki.
Þú verður alltaf hjá okkur sama hvað gengur á.
Það eru forréttindi
Elsku Guðrún, í dag hefðiru orðið 21árs! Til hamingju með daginn :)
Vildi bara segja þér að ég hugsa til þín daglega, og vildi óska að við hefðum haft meira samband síðustu árin þín. Við ætluðum alltaf að "catch up" og kíkja á kaffihús, en það verður bara að bíða betri tíma :)
Vil senda samúðarkveðjur til fjölskyldu þinnar og vina,
Elsku Gudrún
Thad var svo fallegt ad sja sólina skína á dánardegi thínum sídastlidnum. Okkur fannst alveg eins og thú brostir til okkar allra. Thad fylgir svo mikil gledi og birta thegar manni er hugsad til thín. Ástarkvedjur til ykkar kæru Jón, Elísabet, Jónína og Snæfrídur.
Atli og Alexandra
Jonina Bríet29/02/08
elsku systir min það eru komin 2 ár siðan að ég misti þig en ekkert hefur það skánað ég hugsa óendalega mikið um þig ,í gær var 28.feb. ég fór með blóm að leiðinu þinu ég keifti bleikar liljur því liljur voru uppáhalds blómin þín og bleikur uppáhalds liturinn þinn siðan eikver hvít blóm með sem ég veit ekki hvað þau heita siðan hveit ég á 3 kertum fyrir þig 1 merkir hvað ég elskaþig 2 merkir hvesu mikið ég sakna þín 3 er fyrir það að ég mun altaf hugsa til þín það hefði verði 4 en ég gat bara ekki kveigt á því :D en elsku engilin minn og besta systir sem til er ég bíð með spenigi að fá að vera hja þér aftur þú ert besta og æðislegast maneska sem ég þekki og ég fékk þann heiður að vera lilla systir þín sem er æðilegt elska þig að eilífu þín lilla systir Jónina Bríet
Hæ Guðrún mín
Mér var hugsað til þín í gær. ....... .. .
Vill senda ástar og samúðar kveðjur til Elísabetar, Jón , Jónínu og Snæfríðar.
Arndís12/02/08
Elsku Guðrún er búin að vera að hugsa til þín. Skrítið hvað tíminn líður hratt svo stutt síðan þú varst lítið brosandi barn. Nú eru að verða tvö ár frá því þú kvaddir þennan heim. Hugsa til þín á fallegum, friðsælum stað og veit að ég hitti þig þar þegar þar að kemur.
Það fer að nálgast 2 ár frá því að þú fórst í þitt ferðalag, en fyrir mig
var það eins og í gær, það er erfitt að sætta sig við þennan veruleika
en því miður verður því ekki breytt.
En minningin um þig elskulega Guðrún mín er mér svo dýrmæt og
að fá að umgangast þig og kynnast þessi örfáu ár voru alveg óborganleg.
Nú nálgast jólin og þá verður söknuðurinn sterkari en ég er fullviss að
við munum hittast á ný og þá verða gleðifundir.
Ég hugsa oft til fjölskyldu þinnar og bið fyrir styrk til þeirra á þessum
erfiða tíma sem jólin eru. Kveiki á kerti á hverju kvöldi við mynd sem
ég á af þér og er oft í hörku samræðum við þig og ræði viðburði dagsins
kanski asnalegt en mér finnst of gott að ræða við þig.
Elsku guðrún,,,núna eru jólin að koma og þín verður sárt saknað,hugsa mikið til þín þessa dagana ,þú poppar upp á ótrúlegustu stöðum,hugsaðu vel um mömmu þína og pabba og systkin,það er erfiður mánuður frammundan fyrir þau,ýminda ég mér,lov you lots,hitti þig á aðfangadagog set eitthvað sætt hjá þér inger
hvað ég sakna þín sárt...og hvað það er erfitt þegar tíminn líður og .. raunveruleikinn skríður hægt upp um bakið á mér, sama hvað ég reyni að forðast það ... og ég get alveg sagt þér að...ég er búin að leggja mig alla fram við að láta sem þetta hafi bara verið martröð og þú komir svo bara þegar þú ert búin á þessu ferðalagi sem þú tókst...
Og ...ég þrái það að við hittumst einhvern tímann aftur...en um það veit ég ekkert ...og það kvelur mig....ég sakna þín svo sárt ...elsku hjartans barnið mitt, ég vona að ég fái að sjá þig og ég þrái að fá halda utan um þig...
sp15/09/07
Hæ Guðrún
Vildi að þú hefðir verið með okkur í kvöld, þú hefðir skemmt þér vel með okkur.
Sakna þín mikið og hugsa mikið til þín.
Þórður A26/06/07
Hæ elsku Guðrún
Mér var hugsað til þin í dag. Og í minni praktiskri hugsun segji ég við sjalfan mig að nú er sko liðin langur tími, svo ég get alveg sko velt mer upp í þessu aðeins..... En þa fann ég bara hvernig tárinn byrjuðu að renna niður kinnar mínar eins og að það hafi gerst i gær, og mikil undrun grýpur mig. Þetta er greinilega ekkert grafið og gleymt. Elska þig og sakna!!!
Mig dreymdi þig í nótt og það var svo raunverulegt við vorum að tala um slysið og hvernig þú hafðir það. Ohh hvað ég vona að þér líður jafnvel og þú sagðir í draumnum. Ég mun aldrei gleyma þér og mér mun örruglega halda áfram að dreyma þig eins og ég hef gert oft núna. Alltaf jafn gaman þegar þú kemur til mín í draumum. Síðan hittumst við aftur þegar sá tími kemur. Takk fyrir góðan vinskap og þú átt þér alltaf stað í hjarta mínu
Kveðja
Kristín Erla
Í gær hefðir þú átt að halda upp á tvítugsafmælið þitt.
Vikan sem var að líða var erfið að mörgu leyti. En söknuðurinn sem tekið hefur sér bólfestu hjá fólkinu sem elskaði þig er viðvarandi allan ársins hring, en kemur ekki einungis og fer á hátíðisdögum.
Um jólin fórum við fjölskyldan á skíði til Snowmass. Það var í fyrsta sinn sem ég fór þangað án þín. Minningarnar um okkur saman á fleygiferð niður brekkurnar fylltu mig bæði af gleði og söknuði.
When I saw the break of day
I wished that I could fly away
Instead of kneeling in the sand
Catching teardrops in my hand
My heart is drenched in wine
But you'll be on my mind
Forever
Sakna þín meira en orð fá lýst elsku hjartans Guðrún mín.
Þín alltaf, Sigríður Erla
Til hamingju með afmælið elsku Guðrún.Erum öll að hugsa til þín í dag,,,,datt þetta í hug og þú,,,,,I am a lunatic.I have no rules.I have no boundaries.Life is but a game and we are to make the most of it .When it is done and dusted we should know,we had fun,we concuered all the shit that was thrown at us and we made a difference.Kill everything with kindness and smother everyone with love, one day somone WILL appreciate it and if they dont then at least you can go to your grave knowing that you gave it your all ,you did your best and you kept it real....love you lots inger
Okkur er mikið hugsað til ykkar þessa vikuna. Um daginn var ár frá því að Guðrún fór og í kvöld er 20 ára afmælisdagurinn hennar að líða hjá. Þó ár sé liðið er missirinn er enn mjög sár. Hvað við vildum ekki gefa til að getað huggað ykkur. Við vonum að það hjálpi ykkur að vita að Guðrún er enn sterk í hugum okkar. Útgeislun hennar og sjarmi er öllum þeim sem þekktu hana ógleymanlegur. Megi hækkandi sól og fallegir vordagar létta á sorginni. Hjá Guðrúnu eru bara bjartir sumardagar og bros hennar vakir yfir okkur. Ástar og saknaðarkveðjur, Kristín og fjölskylda
Elsku besta systir!
Í dag er dagurinn þinn! Til hamingju með stórafmælið, tvítug í dag! Söknuðurinn er óbærilegur þessa dagana, ófá tárin renna niður kinnanar og hugurinn er hjá þér.
En eins og ég sagði áðan þá er afmælisdagurinn þinn í dag og í tilefni dagsins eldaði ég ekta ameriskan brunch og í þessum skrifuðu orðum er Helena að búa til afmælissúkkulaðiköku, sem við ætlum að gæða okkur á eftir.
Einnig talaði ég við pabba áðan og voru hann, mamma, Jónína, og Snæfríður að elda uppáhaldið þitt, alvöru svínó:).
Veit reyndar ekki hvaða mat ég á að elda í kvöld, en hún litla frænka þín Elísabet Kolka fékk sér kjötbollur í fyrsta skipti.
Elsku besta systir njóttu dagsins í dag hvar sem þú ert og megi Guð og englanir varðveita þig.
Ástar og saknaðarkveðjur til þín afmælisbarn!
Þinn bróðir Pálmi.
Elsku hjartans Guðrún mín
Í dag er þinn fæðingardagur 4 mars og 20 ár síðan þú komst til okkar
yndisleg falleg stúlka. Mikil var gleði okkar að eignast þig ástin mín
fyrsta barnabarn okkar og fyrsta barn foreldra þinna, já dásamleg stund
í lífi okkar að fá þig Guðrún mín.
Einstaklega glaðvært barn algjör sólageisli . Þú gafst okkur ást hamingju og gleði með þínu lífi sem við aldrei gleymum .
Takk fyrir alla þína ást umhyggju og glaðværð sem þú gafst okkur elskan mín.
Mikill er sökknuðurinn að geta ekki verið með þér í dag en ég er með þér í hjarta mínu og ást minni til þín alla tíð
Guð blessi þig Guðrún mín og enn og aftur takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér í lífinu sem er ómetanlegt.
Elsku Gudrún
Mig langadi svo mikid ad segja eitthvad spekingslegt og ljódrænt og fallegt vid thig. Tala um hvad snjókoman vard einkennilega dapurleg thennan morgunn fyrir ári sídan, hvernig tíminn stoppadi thegar Fjóla kom til okkar thennan morgunn med hrædilegu fréttirnar, um thad hvernig thú kenndir á thennan erfida hátt öllum sem elskudu thig ad lífid er algjör rádgáta og ad vid verdum ad meta hverja mínútu sem vid eigum. En hann frændi thinn Atli er ekki svo vitlaus.. og hitti audvitad naglann á höfudid um thad sem skiptir máli í dag. Ad skrifa örfá ord, til ad sýna thér væntumthykju okkar og hlýhug, og thessum yndislegu manneskjum sem elska thig svo ofsalega mikid.
Hjartans ástakvedjur til thín bjarti engill.Vid hugsum alltaf til thín.
Alex, Atli og Benjamín Kári
Svo erfitt að segja nokkuð. Erfiðara að segja ekki neitt. Nú þegar afmælisdagurinn nálgast ætti bara að vera gleði og tilhlökkun í huga sem er auðvitað víðs fjarri og sérstaklega í nótt og í dag. Ár er liðið og litlu minni er sársaukinn. Til þín ég hugsa með söknuði sem ég strái örlítilli gleði yfir vegna tímans sem við áttum saman. Til foreldra, systkina, ættingja og vina með hluttekningu í harmi.
Að svona yndisleg stúlka skildi vera tekin frá okkur er alveg óskiljanlegt. En hún skildi eftir yndislegar og skemmtilegar minningar sem hlýjar
mér oft um hjartarætur og vil ég þakka þér Guðrún fyrir þær.
Jónína ég er viss um að Guðrún sé mjög stolt af þér og ég sé hvað
þér þótti vænt um hana á skrifum þínum.
Hæ elsku Guðrún mín, það er ár í dag síðan þú kvaddir okkur.
Ég mann eftir þessum degi eins og hann hafi verið í gær, sársaukin, kvölin og vantrúin og svo þessi kaldi veruleiki. Ogsvo margt sem maður getur ekki komið orði á.
Ég segi nú bara eins og systir þín að ég trúi því að þú hafir það gott því það er í eðli þínu, hvar sem þú varst varstu glöð og það smittaðist af þér þannig maður varð bara glaður af því að vera nálægt þer. Þannig þú ert örugglega buin að breytta himnaríki í þitt party hús og orðin aðalnúmerið þarna.
Bestu kveðju elsku frænka
Þinn frændi Þórður
Jónína Bríet06/02/07
núna er að koma ár siðan þú fóst úr lífi mínu vá hvað þetta hefur verið hræðilegt ár án þín það skrínasta við það núna er ég að fá bílpróf og það vast þú sem ælaðir að kenar mér að keira á bíl því ég kunni ekki glóru á bíl en nuna ertu ekki hér váá ég man eftir því þegar þú fegst bílprófið þitt heh þú elskaðir það þú vast líka svo mikil bíla maneskja anað en ég.eina sem ég veit um bíla er hvað mér finst flot en svona er þetta . síðan átu afmali bráðum þú hefðir verðað 20 vá ef eikvað var þér hlakaði svakalega til að vera 20 :) þér fanst það úber spenandi en ég veit hvar sem þú ert munu halta upp á afmalið þitt með stæl að það er eitt með þig þú ert altaf flot hvað sem er en eit veit ég að ég verð með þér í huga eins og þú með mér. elska þig að eilífu þín lilla systir Jónína
Nú nálgast fyrstu jólin sem Guðrún er ekki hjá okkur. Þetta hlýtur
að vera erfiður tími fyrir ykkur. Við fjölskyldan sendum ykkur
okkar innilegustu jólakveðjur og Guðrún er í hugum okkar allra
þessi jól eins og aðra daga .
Hæ Elsku Guðrún
Stundum þarf ekki mikið til..........Ég var að fikta mig áfram á netinu í vinnunni og rakst ég þá á my space síðuna þína,mér brá svo svakalega og sat ég stjörf við skjáinn og horfði á þig á öllum þessum myndum,alltaf brosandi,streymdu niður tárin og minningarnar.Um daginn kom Hrafnhildur mín heim með stóran hvítan engil sem hún hafði sagað,skorið út og málað og og vildi hún að hann yrði hengdur upp, þegar ég fór að skoða hann sá ég að það var eitthvað skrifað undir honum,,þar stóð "Þetta er Guðrúnar engill,geymdu mig alltaf,Hrafnhildur".Það eru lika þeir smærri sem hugsa til þín og nú er Lubbi kominn til þín,passaðu hann fyrir okkur.Ég fann svo fallegt kerti í " búðinni " þinni og mun ég setja það hjá þér um jólin.Það er ótrúlegt hvað þú hafðir áhrif á líf margra,ég mun aldrei gleyma þér. Inger Rut
Elísabet, Jón,Jónína og Snæfríður15/11/06
kæru vinir,
mikið óskaplega er gott að lesa þessar kveðjur og ljóð sem þið sendið okkur ,
það er ljós í myrkri að fá að lesa þessar kveðjur og yndisleg ljóð....
það er þannig, að þegar sorgin hellist yfir okkur, þá leitum við allra leiða til tengjast við hana.....og þessi síða er eitt af því fyrsta sem við skoðum , til að fá hughreystingu og jafnvel til að heyra einhverjar sögur eða atburði um hana sen við vissum ekki um og tengir okkur við hana.
Núna eru fyrstu jólin að nálgast án hennar og við erum að ganga í gegnum mjög erfitt timabil núna. Ekki bara fyrstu jólin án hennar, heldur fyrsta ....allt.....án hennar....verður allt næsta ár.
Nú eru liðnir c.a. 8 mán. frá því að Guðrún fór, og hvað okkur varðar erum við fyrst núna farinn að horfast í augu við þetta og ....núna er sorgin yfirþyrmandi.......fyrra tímabilið er allt í hálfgerði móðu.....en núna þurfum við að fara að horfast í augu við það að vera búin að missa barnið okkar og systur.
elsku vinir, þessi stuðningur ykkar er ómetanlegur.
Vertu ekki grátinn við gröfina mín,
Góða ég sef ekki þar.
Ég er leikandi í ljúfum vindum
Ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á fold
og fræið í hlýrri mold.
-
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn á nóttu til.
Gráttu ei við gröfina hér,
gáðu, ég dó ei! Ég lifi í þér.
Bara örfá orð við fjölskyldan erum alltaf að hugsa til
þín og að við söknum þín óskaplega.
Eitt get ég sagt að ég hef ekki horft á lífið með sömu augum
og áður. Lífið er dýrmætt og á að fara vel með það. Enginn á
að fara ósáttur að sofa að kveldi því við vitum ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Elín
Auður Anna13/10/06
Elsku ástin mín. í dag var erfiður dagur...ég get ekki hætt að pæla í því hvar þú sért og afhverju þú?? Langar svo mikið að hitta þig og knúsa þig einu sinni enn!! Þegar gráturinn er svona mikill þá kemur lægð á eftir og allt svo rólegt og hljótt , og þá finn ég virkilega fyrir því að þú ert hérna hjá mér. Ég sakna þín svo mikið Guðrún MÍN og finnst allt svo tómt án þín. Veit stundum ekki hvað ég á að gera af mér...þetta líf er bara svo skrýtið en ég vona bara, voona svo innilega að það sé einhver tilgangur með því að taka lífsglöðustu og frábærustu manneskju sem til er og fara með hana af þessari jörð, frá okkur sem elskum hana svo ótrúlega mikið að hjartað ætlar stundum að springa þegar maður hugsar um þetta! Ég elska þig og saknaþín svo sárt engillinn minn.. vil ekki hætta að skrifa af því mér finnst ég vera að tala við þig, en ég veit þú ert þarna með okkur en ég skil bara ekki hvarÞú átt svo stórann part í hjartanu mínu og ég geymi þig alltaf þar, á hverjum degi til æviloka. . ég sé þig seinna elsku engillinn minn..þín Auður.
Nú er komin verslunarmannahelgi og hugur minn fer aftur
til síðustu verslunarmannahelgi þar sem við fórum öll
fjölskyldan vestur og þú og strákarnir fóruð með hjólin.
Þetta var yndisleg helgi og er ég þakklát fyrir þær stundir
sem við áttum öll saman.
Þú ert alltaf í huga okkar allra og við söknum þín.
Jónína (lilla systir)25/06/06
elsku Guðrun min þú ert minn eingil þú ert mitt gull ég leit altaf á þig sem guð :)heh þúvast það eina í lifi minu sem skifti máli , ég er svo tínt án þín ég veit ekki hvað ég á að gera og hvað lífið' mitt er tómt án þín þú ert sú mansekja sem hefur altaf verið þarna fyrir mig þú ert eingillin minn og gullið mitt elska þig meira en lífið sjált og ég get ekki beðið eftir því að fá að hita þig aftur og vera með þér og talað við mig þá logsins verð ég aftur heil í hjarta mínu (L)(K)
Elsku Guðrún.Langaði bara að láta þig vita hvað ég hugsa oft til þín og tala um þig og þá sérstaklega ég og Elín,okkur þykir svo vænt um þig .Það er alltaf það fyrsta sem við gerum þegar í vinnu er komið kveikja á tölvunni og fara inná þessa síðu,Á morgun er smá afmæliskaffi fyrir Hrafnhildi og sagði hún við mig í gærkveldi,,,mamma þetta verður í fyrsta skipti sem Guðrún kemur ekki í afmælið mitt sem ég man eftir,þannig að ég vill að engillinn sem ég bjó til handa henni verði á borðinu svo það sé eins og hún sé hjá okkur,,,,, og svo kom spaugilega hliðin á því ,,,,,guð mamma hver hjálpar eiginlega Orra núna að velja afmælisgjöf,hann getur það ekki einn,,,,, .Hugsa til þín á morgun,kveðja Inger Rut
Elsku Guðrún mín.
Ég er loksins búin að fatta hvaða lag þú varst að syngja fyrir mig í símann í janúar er. Það er ekkert smá fallegt og ég var víst búin að heyra það áður alveg eins og þú sagðir. Ég er líka búin að hlusta á það hundrað sinnum í dag.
Á hestbaki áðan var ég svo mikið að rifja upp þegar við vorum hjá Jónínu uppi í Andvara, þegar við vorum að byrja að læra og hún leyfði okkur að fara einum í reiðtúr. Okkur fannst það skemmtilegast því þá gátum við farið eins hratt og við vildum. Svo fannst okkur alltaf þvílíkt gaman þegar kom langur graskafli uppi í sveit að mega hleypa.
Þá vildir þú alltaf fara í kapp, sem mér fannst reyndar ekki alveg jafn eftirsóknarvert, afþví þú vannst oftast. Mig minnir að þú hafir eiginlega alltaf unnið, nema í eitt skiptið þegar þú dast af baki, svo það telst kannski ekki með.
Ég sakna þín svo sárt .. við förum aftur á hestbak saman og hleypum í skýjunum.
Kæru Nonni og Elísabet.
Mikið óskaplega var jarðarförin hennar Guðrúnar falleg, séra Hjálmar er einstakur maður og gerði þetta einstaklega vel. Steinunn Anna frænka mín og vinkona þín Nonni hefði orðið fimmtug 14. apríl sl. Þegar Hjálmar var að tala um Guðrúnu ykkar þá var alveg eins og hann væri að tala um Steinunni frænku, það var ótrúlega margt sameiginlegt með þeim þó að aldursmunurinn hafi verið mikill og þær hafi sennilega aldrei hitt hvor aðra. Eftir svona reynslu fer maður að trúa þeim gamla farsa að þeir sem guðirnir elska deyi ungir.... hef oft hugsað til ykkar en þetta sló mig afar mikið þó að við höfum ekki verið í miklu sambandi undanfarin ár.
Gaman væri að hittast einhvern tímann og rifja upp gamlar stundir, kveðja Grétar Friðriksson frá Höfða.
Góðar kveðjur frá pabba og mömmu á Höfða.
Auður Anna13/04/06
Langaði barað skrifa eithvað meir..segja þér hvað ég sakna þín óeðlilega mikið ástin mín. Er í París núna og var að hugsa hvað það hefði verið gaman að hafa þig með útaf öllum tískubúðunum þú hefðir alveg tapað þér :) en ég fékk að fara einu sinni með þér út, til Portúgal. Það var æðislegt og verður sú minning vel geymd. Manstu þegar við fórum bara við 2 á kútana sem voru bundnir við spíttbát og dróg okkur út um allt í sjónum, og við hlógum okkur máttlausar allan tímann. Það var svo gaamaan..váá..ég sakna þín svo mikið Guðrún en verð bara að sætta mig við það að geyma allar minningarnar vel og hugsa um þær. Ég var að finna myndir af okkur út á Portúgal og okkur og sóley þegar við vorum bara um daginn með svona girls night out og gistum saman hjá þér..en ég veit þú ert með mér og ég veit ég hitti þig seinna, en þangað til verð ég bara að þakka fyrir allan þann tíma sem ég fékk að eyða með þér. Ég elska þig engillinn minn.
Sumir dagar eru betri en aðrir, dagurinn í dag er sérstaklega
erfiður, ég veit ekki hvað það er sem gerist að sorgin verður stundum
svo yfirgengileg að mér finnst eins og hjartað í mér ætli að springa.
Ég horfi á myndina af þér sem ég hef á skrifborðinu mínu og þegar ég
horfi á brosið þitt fallega hlýnar mér um hjartarætur og ég þakka
fyrir að hafa kynnst þér og hafa haft þig sem hluta af fjölskyldunni.
Ég hugsa oft um hvort ég hafi sagt við þig hvað okkur þótti vænt
um þig og elskuðum þig eins og dóttur ef ekki þá segi ég það nú að
okkur þótti afskaplega vænt um þig og við söknum þín.
Elsku Guðrún frænka mín.
Hundurinn minn er látinn í dag.
Nennir þú að taka vel móti honum og passaðu hann fyrir mig
Hundurinn minn er mjög góður hundur.
Elsku Guðrún mín nennir þú að hugsa vel um hundinn minn.
Núna er hann kominn upp til þín.
þið er í hjartanum mínum alltaf að passa mig.
Elsku Guðrún frænka mín.
Hundurinn minn er látinn í dag.
Elsku Guðrún mín nennir þú að taka vel móti honum og passaðu hann fyrir mig.
Núna er hundurinn minn kominn upp til þín. Hann er mjög góður hundur.
Elsku Guðrún mín nennir þú að hugsa vel um hann. Núna er þið í hjartanum mínum að passa mig.
Með bestu kveðju
Skúli Steinar
sigurjón 'Asgeirsson02/04/06
28 febrúar er dagurinn sem eg vaknaði upp um morguninn við það að síminn hjá mer hringir og eg fæ að heira að guðrún sé dáinn eg óskaði þess svo að eg væri að fá slæma martröð og þetta væri ekki búið að ske þær stundir sem eg átti með þér voru þær bestu sem eg hef átt .bara það eitt að hafa feingið að kynnast þér er eitthvað sem eg mun alltaf vera þakklátur fyrir. eg veit það að þú ert einhver staðar á góðum stað og við munum hittast aftur
við sitjum hér og erum að rifja upp skemmtilegar og grallaralegar minningar um þig. Það er að renna upp fyrir okkur að það var mikill grallari í þér...lík pabba þínum.... og þú varst lika viðkvæm og falleg útsprungin rós sem ætlaðir þér að hefja fullorðinsárinn af skynsemi og ákveðni....þú vissir hvað þú vildir og sýndir jafnt ákveðni og blíðu....eitthvað sem við kunnum svo sannarlega að meta. Ekkert getur fyllt þitt skarð...og þú ert og verður alltaf partur af okkur , við munum reyna af öllum mætti að lifa með þeirri hugsun að sjá þig ekki fyrr en okkar tími er kominn...þangað til ætlum við að halda í og hugga okkur við skemmtilegar minningar um þig.
Hér er ein góð minning.
Þú og Sóley voru hér í Danmörku 16. des. og voru svo heppnar að geta gist á fínasta hotelinu hér í kaupmannahöfn. Það var nátturulega alveg frábært og ykkur leiddist ekkert. Eina nóttina þegar þið voruð að koma heim af balli varst þú svo þreytt ...alltaf á pinnahælum....þannig að þú skelltir þér upp að einum vagninum " rikkshow" sem hjóla með mann um kaupmannahöfn og spurðir hvort hann keppti á þessu. JA..sagði hann...og þá hófst eitt af ævintýrum ykkar Sóleyjar......tveir vagnar á hraða spretti niður strikið ....og þú og Sóley í keppni. Að sjálfðsögðu þurfti að borga vel fyrir þessa þjónustu...en alveg þess virði.
Þetta er ein af mörgum minningum um þig, saga sem Sóley sagði okkur og ef þið...kæru vinir Guðrúnar eigið skemmtilegar minningar af henni þá þætti okkur ómetanlegt að fá að lesa þær.
elsku Guðrún, við elskum þig ofurheitt og söknum þín enn meira.
Elsku Guðrún, þetta voru hrykalegar fréttir þegar hún maría hringdi í mig til spánar og sagði mér að Gugga væri dáin, það er kanski frekar langt síðan við vorum vinkonur en við áttum góða tíma saman og ég á margar góðar myndir og minningar. Það er svo stutt síðan við hittumst í afmælinu hennar Maríu og spjölluðum.
Ég vil votta vinum þínum, fjölskyldu og öllum þeim sem eiga um sárt að binda á þessum erfiðu tímum alla mína samúð.
Kveðja Erla María Wendel
hæ elsku gullið mitt langaði bara að skrifa eikvað "er með lesblindu þanni skrifa smá vilaust fyrir þá sem eru að lesa''
en hvað á maður að seiga á svona tímum það er ekki mikið sem maður getur sagt eða skrifað en ef í þessum skrína heima muntu sjá þetta þá veistu að ég elska þig meira en altt og ég sakna þín svo lífið mitt er svo eikvað tómt án þín en ég mun altaf hafa minigar og mindir og það er betra en ekki neit , allir eru búinn að vera seiga mér að guð taki þá til sín sem hann elskar mest en ég elska þig meira og þú vast tekin af mér mer finst það persónulega ósamgjaft en anas eins og ég sagði ef þetta er svona skrítin heimur og þú sérð þetta ég elska þig meira an ALTT þín lilla sistir og besta vinona Jónína Bríet Jónsdóttir:*:*:*:*:*:* I LOVE U
Ég get ekki líst því hversu sorgmædd ég var daginn sem ég frétti að þú væri látin. Þó að það sé frekar langt síðan við vorum góðar vinkonur, hefur mér alltaf þótt óskaplega vænt um þig og þú hefur alltaf átt þinn stað í hjarta mínu. Þú varst mjög góð vinkona. Við kynntumst þegar þú varst í 8.bekk í garðaskóla og ég 9.bekk. Við náðum strax rosalega vel saman og urðum eiginlega strax góðar vinkonur. Þegar ég hugsa til baka og hugsa hvað var það sem stóð einna helst upp úr Garðaskólaárunum þá var það tvímælalaust sá tími sem við vorum vinkonur. Tímabilið þegar ég, þú, Sóley, Gummi og Orri vorum alltaf að hanga saman eru skemmtilegar minningar sem ég gleymi aldrei.
Manni leiddist aldrei þegar maður var með þér. Allt var svo auðvelt eitthvað, og ef ég efaðist um eitthvað þá sagðir þú alltaf brosandi “þetta reddast” og alltaf reddaðist allt :)
Sumarið eftir 9.bekk var svo mjög skemmtilegt sumar. Fórum oft heim til í hádegishléinu í unglingavinnunni, pöntuðum okkur pizzu frá Dominos og þurftum svo alltaf að hakka hana í okkur til að vera ekki of seinar aftur í vinnuna. Og í kringum afmælið mitt þá spurðiru mig hvort við ættum ekki bara að fara upp í sumarbústaðinn þinn, tjalda og grilla og halda upp á afmælið mitt. Mér leist náttúrulega mjög vel á það þannig að ég, þú og Anna tókum rútuna upp eftir og pabbi þinn sótti okkur á bensínstöðina. Það var rosalega gaman hjá okkur, kveiktum næstum því í grasinu þegar við reyndum að grilla, hjálpuðum pabba þínum og fleira fólki að reka rollurnar af jörðinni, og svo fengum við að fara á fjórhjólin með því skilyrði að við færum ekki nálægt þjóðveginum. Svo fórum við alveg óvart of langt og neyddumst til að snúa við á þjóðveginum og þar sem þetta var mitt fyrsta skipti á fjórhjóli kunni ég ekki nógu vel á bakkgírinn og gerði nokkrar tilraunir til að snúa við sem tókst svo á endanum hehe. En það þurfti akkúrat bíll að koma..eini bíllinn sem kom meðan við vorum að snúa við og það var löggan. Þeir slepptu okkur nú með áminningu og ég man hvað ég var alveg að deyja úr hræðslu því pabbi þinn varð ekkert sérstaklega ánægður. Þú sagðir að þetta væri allt í lagi og svo hlógum við öll af þessu seinna.
Síðustu ár hef ég oft hugsað til þín. Ég hitti þig nokkrum sinnum á djamminu og var alltaf á leiðinni að hringja í þig og biðja þig að koma á kaffihús eða eitthvað og rifja upp gamla tíma, en ég hugsaði alltaf “ég geri það í næstu viku” og svo liðu vikurnar og ekkert gerðist. Ég sé mikið eftir því núna því eins og máltakið segir: “enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur”
Elsku Guðrún mín. Það var heiður að hafa fengið að kynnast þér og vonandi líður þér vel þar sem þú ert núna og. Ég mun aldrei gleyma þér og fallega brosinu þínu og smitandi hlátrinum þínum. Vonandi hittumst við einhvern tímann aftur. Þín verður sárt saknað.
Megi englar guðs vaka yfir Orra, fjölskyldunni þinni, Sóley og öðrum vinum og vandamönnum og styrkja í þessari miklu sorg.
Erna Haraldsdóttir
Harpa og fjölskylda15/03/06
Okkur langar að votta Jóni, Elísabetu, Jónínu og Snæfríði, ættingjum, vinum sem og öðrum aðstandendum virðingu og innilega samúð. Megi guð vaka yfir ykkur og bera ykkur í gegnum þennan erfiða tíma.
Ég vildi bara einhvernvegin fá að kveðja, reyna að skilja og segja hæ. Vona að þér líði vel Guðrún mín! Langt síðan ég hitti þig almennilega en ég vildi bara segja takk fyrir, því það var margt sem þú gerðir sem kenndi mér að alltaf muna hversu yndislegt lífið er og að maður ætti að njóta þess út í yrstu æsa. Ég er alveg viss um að allir sem þig hittu og töluðu við þig munu alltaf muna eftir þér, þannig varstu bara gerð. Varst það stór og mikil manneksja að þú stjórnaðir alltaf smá, þannig var það allavega hjá okkur.Þannig var það æðislegt.Á yndislega minningar um þig sem munu alltaf vera hjá mér,
Takk fyrir mig Gugga mín..sjáumst!
Elsku frænka mín þú veist að því að ég komst ekki í jarðaförina þína af því að ég var keppa í sundi í Esbjerg í Danmörku. En ég hugsaði samt mikið til þín meðan ég var að keppa. Þú gafst mér styrk og kraft til þess að vera í þessu móti. Þú varst í hjartanum mínum og það verður þú alltaf í hjartnanum mínum. Guð skal passa þig þarna uppi. Ástin mun hlýða þér. Ég mun alltaf sakna þín mikið þegar þú ert með mér.
Kveðja Skúli Steinar
Kristín Valgerður Ellertsdóttir / Krissa13/03/06
Elsku Guðrún, ég gleymi því ekki þegar ég frétti að Orri frændi minn væri kominn með kærustu!! Mér hlakkaði svo til að sjá þig og þú stóðst undir öllum væntingum sem ég hafði gert, þú varst svo falleg að maður átti ekki orð. Þú varst alltaf svo feimin fyrst þegar við hittumst en þegar þú opnaðir þig og fórst að tala þá lýstist allt herbergið upp!
Stórt skarð hefur myndast í fjölskylduna og munum við öll sakna þín rosalega mikið. Ég skal líta eftir Orra þínum og geyma góðar sögur til að segja þér þegar við hittumst næst elsku engill.
Ég vil votta öllum aðstandendum og vinum Guðrúnar samúð mína.
Hvar sem sál Guðrúnar er niðurkominn get ég ekki beðið eftir að hitta hana ekki það að ég vilji deyja heldur til þess að segja henni hvernig mér hafi gengið og segja henni frá öllu því sem búið er að vera á gangi í lífi mínu kannski heyrir hún í mér nú þegar og þá vil ég að hún viti að ég og Orri, Sóley, Auður, Jónína, Jón og Elísabet og allir hinir sem elska hana jafn mikið og við gerum að hún mun alltaf lifa í hjarta okkar og ég veit að þegar minn tími er kominn þá mun hún bíða eftir mér og fagna mér og allt mun vera eins og í gamla daga þegar við áttum svo góðar stundir saman að gera allt sem okkur langaði því ekkert gat stoppað okkur! enginn gat staðið í vegi fyrir okkur! við erum óstoppanleg og munum halda áfram að lifa lífinu eins vel og við getum auðvitað gerum við mistök og höfum gert þau allmörg og Guðrún þú veist hver hehe.En þá er bara eitt sem hægt er að gera og það er að rífa sig upp aftur og halda áfram. því þannig erum við krakkarnir og þannig var Guðrún. Framundan eru góðir tímar og þegar okkar tími kemur sameinumst við aftur og höldum gleðinni áfram eins og ekkert hefði gerst.
og hvar sem þú ert guðrún ertu á betri stað og get ég ekki beðið þess að hitta þig en ekki strax !!!
Elsku Guðrún.Það er svo sárt að horfa á eftir þér,þú varst svo yndislegur partur af fjölskyldunni.Það eru svo margar minningar sem koma upp í hugann eins og,,, Hvað þú varst feimin og sæt þegar ég hitti þig fyrst,,,,,Hvað þú varst hugulsöm og góð við Hrafnhildi og Gunna,,,,,,,Sérstaklega er mér minnistætt þegar við fórum að horfa á orra og fúsa á mótorhjólunum og við horfðum á og kjöftuðum um allt milli himins og jarðar,er ég fór að segja þér frá prakkarastrikum mínum og hvað ég hefði verið óþekkur unglingur og svo sprakkst þú bara úr hlátri og sagðir ; Inger kallar þú þetta að hafa verið óþekkur unglingur ég skal sko segja þér sögur og hlóst þínum smitandi hlátri.,,,, Aldrei mun ég gleyma verslunarmannahelginni 2005 þegar við fórum í sumarbústaðinn. það var alveg frábær helgi við spiluðum,borðuðum góðan mat, fórum á mótorhjólin eða þið,manstu þegar ég prófaði þitt hjól þú gast sko hlegið að því,,,, þegar þú og bóbó keyrðuð á búðir vegna þess að ég hafði keypt allt vitlaust í ríkinu og þig langaði svo að búa til pina colada fyrir okkur, það var hæft að hlægja af því líka,,,,,,,,,,,, Svo ferðin til Danmerkur þegar tengdapabbi varð fimmtugur ,það var alveg yndisleg helgi þegar við hjóluðum alla leið til mömmu þinnar að hitta hana,jóninu og snæfríði og borðuðum pizzu útí garði,út að borða,tívolíið,dýragarðurinn og ég og þú á trúnó á Hard Rock,manstu eftir brúnku töflunum guð hvað við hlóum.Þú varst svo brosmild og lifandi gullfalleg stúlka sem bræddir mann með einu brosi.Það er svo erfitt að koma inní herbergið hans orra þíns þar sem þið áttuð ykkar eigin heim.Ég þakka fyrir allar stundirnar sem ég og fjölskylda mín áttum með þér elsku Guðrún ,ég mun aldrei gleyma þér.Ég votta aðstandendum Guðrúnar alla mína virðingu og samúð.við munum passa vel uppá Orra þinn. Þín Inger
Þó svo að samverustundir okkar hefðu ekki verið mjög margar, og við værum af sitthvoru sauðarhúsinu, lærði ég margt af þér.
Mig langaði til að votta Guðrúnu og aðstandendum hennar virðingu mína og einnig að deila með ykkur óregglulegu ljóði sem ég samdi undir áhrifum frá þessum voðalega atburði...
Í rafmögnuðu umhverfi
ég sá þig fyrst.
Blóm í brotinni glerkrukku
sem einhver hafði misst.
Þú mátt ekki gleyma
ég á inni hjá þér dans.
Ég rukka þig um sporin
er ég stíg upp til Hans.
Ég á eina mynd af þér
sem segir mér svo margt;
hvað lífið getur verið mjúkt
um leið og það er hart.
Ég mun aldrei gleyma
þessu loforði til þín.
Við tökum saman sporið
um leið og endar ævi mín
Ég gæti svo sem sagt ykkur
Meira um það
Tíminn er mér hagstæður
Þó ég viti að
ég geti aldrei fundið orð
sambærileg við þig.
Ég læt því bara þögnina
tala fyrir mig...
Elsku Guðrún. Það var gaman að hafa kynnst þér,gaman þegar við fórum út að borða og rosalega gaman þegar við fórum um verslunarmannahelgina í sumarbústaðinn.Mér þykir vænt um þig og vildi að þú værir ennþá hér.Ég skal passa Orra fyrir þig.Hrafnhildur (frænka orra)
Elsku Guðrún mín.
Aldrei hefði það hvarflað að mér að ég ætti eftir að þurfa að skrifa mín síðustu orð til þín, svona stuttu eftir að við hittumst aftur eftir langan aðskilnað.
Það eru aðeins nokkrar vikur síðan ég sat með þér á kaffihúsi og sagði þér hvað hefði á daga mína drifið þann tíma sem ég hafði ekki séð þig,
og hlustaði á þig segja mér þína sögu. Hefði ég vitað að ég ætti aldrei eftir að sjá þig aftur, þá efast ég um að það hefðu verið fleiri hlutir sem ég hefði þurft að
nefna við þig. Þetta kvöld og þetta spjall okkar var einfaldlega yndislegt í alla staði.
Þó er margt sem brennur á mér við svona hryllilegan atburð, þegar svona ung og falleg stelpa sem átti allt lífið framundan kveður þennan heim
á jafn sviplegan og óvæntan hátt og þú gerðir.
Til dæmis er oft sagt við mann þegar andlát ber að, að ,,þeirra tími hafi verið kominn".
Hvernig í ósköpunum getur það verið að þinn tími hafi verið kominn? Þú, sem ætlaðir að læra flug eða jafnvel vinna með þroskaheftum einstaklingum?
Ég man hvernig ég dáðist að þér þetta kvöld þegar þú sagðir mér að þig langaði til að vinna með þroskaheftum einstaklingum, því þrátt fyrir að ég sé sjálfur starfandi í heilbrigðisgeiranum og þekki margt gott fólk í þeirri stétt, þá vantar alltaf hjartahlýja og bjarta einstaklinga eins og þú varst til að sinna þessum hópi sem þú ætlaðir að starfa með. Þú varst sterk sál, og eins og margir hafa sagt þá varstu fær til að gera allt sem þig langaði til. Hvað sem þú hefðir tekið þér fyrir hendur seinna á lífsleiðinni, hefðir þú orðið einna best í.
Morguninn eftir að þú kvaddir þennan heim var ég á Þingvöllum í ferð með góðra vina hópi úr skólanum að skoða undur gjánna í Þingvallavatni.
Alls óafvitandi hvað hafði gerst um nóttina naut ég fegurðarinnar undir vatnsborðinu, og ég verð að segja að þú hefðir varla getað valið fallegri dag til að kveðja okkur hin. En ég fékk fréttirnar þegar ég fékk blaðið í hendurnar daginn eftir, og það má segja að það var eins og einhver hefði kippt undan mér fótunum og kastað mér í gólfið. Svona sár eru lengi að gróa, og manni hættir til að sjá ekki stjörnurnar fyrir nóttinni þegar maður lendir í svona djúpri sorg.
Gamall maður sem ég kynntist þegar ég var í Brasilíu mælti eitt sinn mjög merkilega setningu við mig þegar við sátum undir trjánum til að skýla okkur undan brennheitri hádegissólinni. Ég hafði verið að spyrja hann hver galdurinn á bak við góða heilsu hans á tíræðisaldrinum væri, og þá leit hann upp úr teinu sínu beint á mig og mælti orðrétt:
,,Minn kæri ungi vinur. Glati ég gleðinni, þá glata ég öllu. Galdurinn við að komast tiltölulega heill í gegnum lífið þó maður sjái margt misfagurt á lífsleiðinni er sá að þó nóttin sé dimm og löng, þá þarf maður aðeins að líta til himins til að sjá stjörnurnar sem lýsa upp náttmyrkrið. Þessir örlitlu ljósu punktar á himninum geta gert kraftaverk. Þannig er með lífið, að svartnættið getur umlukið mann á hverri stundu, en eins og ég sagði áðan þá þarf bara að líta upp til að reyna að finna í það minnsta einhverja gleði í hjartanu".
Á þessum sorgartímum fyrir bæði mig og fjölmarga aðra aðstandendur þína er nauðsynlegt að líta í minningarnar sem við höfum um þig, svona bjarta og geislandi manneskju eins og þú varst. Þessar minningar eru á þessum erfiðu tímum stjörnurnar mínar á svarta himninum.
Ritandi þessi orð til þín verður mér litið djúpt inn í mig, upp í himininn innra með mér.
Takk fyrir samveruna engillinn minn, þó ég hefði viljað hafa hana lengri.
Þinn vinur
Gunnar Pétursson
Elsku ástarengillinn minn, það er partur af mínu lífi tekinn í burt og er ólýsanlega sárt að horfast í augu við það. Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera þessa dagana, er einhvernvegin ekki ennþá búin að ná þessu. En litli sólargeislinn minn, þitt bros og þinn hlátur mun alltaf vera í hausnum á mér, allavega þangað til við hittumst aftur. Guðrún Jónsdóttir vildi mikið láta taka eftir sér og lét fólk gera það, ég er viss um að margir séu hugsa um hana og muni eftir þessari stórkostlegu manneskju. Ég elska þig og sakna þín svo ótrúlega mikið. þín Auður litla.
Það er sárt að missa þá gleði og orku sem ávallt einkenndi nærveru Guðrúnar. Krafturinn og lífsgleðin endurspeglaðist svo skýrt í brosinu, brosinu sem náði ekki aðeins til munnvikanna heldur alls andlitsins. Brosið var einkenni Guðrúnar, enda man ég varla eftir henni öðruvísi. Þegar flétt er í minningum og myndir skoðaðar mætir manni ávallt þetta yndislega bros, bros sem er þannig að það snertir hvern þann sem því mætir. Svo mikill er máttur þess bross sem Guðrún sendir okkur á þeim myndum sem eftir liggja, að hver sá sem þær skoðar fer sjálfur að brosa þó gagntekinn sé af harmi. Bros Guðrúnar mun lifa í minningunni og veita okkur styrk þegar sorgin sækir að. Blessuð sé minning þín elsku frænka og megi bros þitt lifa að eilifu.
Elsku frænka, ég get ekki lýst því hve mikið ég sakna þín en ég veit þú ert með okkur núna og alltaf. Mér orðið skortir orð til að reyna segja eitthvað .. en ég vona þú heyrir þegar ég er að tala við þig. Ég mun alltaf elska þig og geyma þig i hjarta mínu.